Í Nígeríu 2002 |
|

Svo dundi skelfingin yfir, flug í Nígeru, svartholi jarðarinnar en það bjargar því sem hægt er að bjarga að við erum lítið í Lagos, mest fer í hótelhangs í NewYork og Dubai. Hér er TF ABA fyrir utan flugstöðina í Lagos.

Lagos - New York, 8500 Km
Það er illa komið fyrir manni þegar maður þarf fylgd þessara þungvopnuðu sveina í vinnuna, en svona er nú ástandið þarna, þessir fantar taka ekki fanga, og hirða ekki upp eftir sig. Ég hef hvorki fyrr né síðar þurft að láta skjóta mér leið í vinnuna. |
Þeir keyra á undan okkur með blikkljós og sírenu væli, veifandi og patandi í allar áttir, ef það dugar ekki sýna þeir byssukjaftana, þá forða hinir sér, þeir þekkja sína menn. Þarna ætti engin hvítur maður að vera. |
Það eru allir hlutir í niðurnýðslu, flugvélar og annað, þarna liggur gömul BAC-111 fyrir utan braut í Lagos, og nokkrar aðrar lengra frá, flugvélaflök er ekki óalgeng sjón meðfram flugbrautum Nígeríu, þeim tekst einhvernvegin að klúðra og eyðileggja alla hluti. Td. er ekki nema um 30% flugflota þeirra skráður flughæfur, hvort hann er það í raun er annað mál. |
Þetta er barnaskól, var einhver að tala um Evrópustaðla? |
Atlanta er þarna með 2 vélar fyrir Nigerian Airways, B-747 og þarna sést B-767 vél Atlanta vera að aka inn aftan við Virgin Atlantic vélina, sem líka er frá Atlanta. |
Unnar og Óskar bíða þarna í von um að komast sem fyrst í flug. Þetta er á hótelinu í Lagos. |
Þessu Nigeria Airways ævintýri lauk svo snemma árs 2003, blessunarlega.