Á Ströndum Júlí 2002 |
|

Dagana 17 til 20 júl. fórum við skötuhjú á strandir til að skoða náttúru og menjar.

Dísa geysi stolt af bílnum sínum ;-) Hér við berggang einn mikinn í Ófeigsfirði.
Kvöldmatur í Ófeigsfirði, eins langt og hægt er að keyra |
Dísa að skoða útihúsa tóftir í Ingólfsfirði. |
Það er náttúrulega ekki hægt að fara um strandir án þess að gera gott stopp í Djúpuvík og þar tók Hafdís Þessa mynd. |
Slóðinn í Ófeigsfjörð liggur lengst af í fjöruborðinu, grýttur og seinfarinn, þarna á heimferð, kominn rigningar úði, þokuslæðingur en stafa logn, þetta voru allt aðrar Strandir en við höfðum séð daginn áður í sól og blíðu, ekki gott að segja hvort er magnaðra. |
Skrokkur Suðurlandsins liggur í fjörunni í Djúpuvík, þetta þótti einu sinni mikið skip. |
Það var "mikið" logn seinni daginn |
Á ströndum býr margt í þokunni, þessi tröll kerling glotti við okkur er við komum yfir einn hálsinn ;-) |
|

Fallegur regnbogi við heimkomuna, óski sér nú hver hver og einn.