Á Virkjunarslóðum haustdaga 2000

 

 

 

haustlitir_2.jpg (45039 bytes)

Dagana 15 til 17 Sept. fórum við þrír félagar á fjöll til að skoða væntanleg virkjunarstæði við Kárahnjúka og Eyjabakka.

Við byrjuðum á að koma við í Sænautarseli.

 

saenautasel_1.jpg (40202 bytes)

Í Sænautaseli á Jökuldalsheiðini var engin heima, nema læða með tvo kettlinga

leidangursmenn_1.jpg (39504 bytes)

Leiðangursmenn voru Kolbeinn Ingi Arason, en hann á þetta land víst allt skuldlaust, hann var okkar leiðsögumaður og áttaviti.  Sigurbjörn Arngrímsson var ökumaður, og þriðji leiðangursmaður var Jón Páll Þorbergsson, vanur fjallaferðamaður  og ljósmyndari leiðangursins.

fjallkonur_1.jpg (38547 bytes)

Á fjöllum hittum við tvær fjallkonur á sínum fjallabíl, þær Jórunn Harðardóttir og Hafdís Eygló Jónsdóttir voru að skoða setlöginn við Kárahnúkana

grosugt.jpg (37653 bytes)

Það er víða grösugt á þessum svæðum og ægi fagurt.

gragaesadalur_1.jpg (45732 bytes)

Fyrsti áningastaður, Grágæsadalur þar er vin í eyðimörk Íslands, og afskaplega vel búin skáli, sem er í eigu nokkurra fljótsdælinga. Við alvanar hótelrottur, gáfum þessum stað 7 stjörnur!!

snaefell_1.jpg (33994 bytes)

Það var hinsvegar asskoti kuldalegt að vakna upp í Snæfelli á þriðjadegi ferðarinnar, en þaðan var svo haldið að Eyjabökkum.

karahnjukur_1.jpg (53540 bytes)

Þarna er fremri kárahnjúkur, dimmugljúfur og farartækið, mikið asskoti var bratt uppá Sandfellið, en það verður sennilega bara eyja í fyrirhuguðu lóni sem á að ná allaleið inn að Vatnajökli, og ekki fer nú minna af grónu landi þar undir vatn en við Eyjabakkana. Og  svona lítur þetta út í júlí 2003. Og svona í ágúst 2005 og svo 26. júlí 2006, síðustu myndir eru svo frá 20 ágúst 2007

dimmugljufur.jpg (41337 bytes)

Þarna sést væntanlegt stíflustæði í Dimmugljúfrum, reiknað er með að stíflan verði 185 metra há og 753 metra löng.  Lónið hér fyrir innann yrði 50 til 60 ferkílómetrar.  Hér má sjá mynd af fyrirhuguðum stíflum og veitum, sem tengjast þessum framkvæmdum.

bill.jpg (23788 bytes)

Einmannalegt farartæki í sandhólum óbyggða Íslands, á heimleið.